Hommar í fótbolta

Steindór Sigurjónsson og Alfreð Hauksson
Það eru miklir fordómar í garð samkynhneigðra fótboltamanna í Bretlandi. Svo miklir að þeir þora ekki að koma útúr skápnum og er jafnvel ráðlagt að gera það ekki. Morgunútvarpið ræddi við eina íslenska fótboltamanninn sem hefur komið útúr skápnum og líka við leikmenn í 2. flokki karla í Leikni.
Um fimmþúsund atvinnumenn spila fótbolta í Bretlandi, enginn þeirra hefur komið útúr skápnum. Þetta kemur fram í nýrri breskri heimildamynd, Britain's Gay Footballers eða ,,Breskir samkynhneigðir fótboltamenn." Myndin er gerð af Amal Fashanu, bróðurdóttur Justin Fashanu sem er fyrsti - og eini, breski fótboltamaðurinn sem hefur komið fram með kynhneigð sína. Fashanu framdi sjálfsmorð árið 1998. Amal reyndi að fá þekkta atvinnumenn í viðtal til að þeir gætu stutt baráttu samkynhneigðra. Þeir neituðu að koma fram í myndinni. Steindór Sigurjónsson leikur með meistaraflokki Sindra á Hornafirði og er eini íslenski knattspyrnumaðurinn sem hefur komið útúr skápnum og haldið áfram að keppa. Steindór kom í Morgunútvarpið ásamt Alfreð Haukssyni frá fótboltafélaginu Styrmi, sem er skipað samkynhneigðum knattspyrnumönnum. Leikmenn hjá 2.flokki Leiknis tjáðu sig líka um málið í þættinum en Berglind Häsler fór á æfingu hjá þeim í gær, ræddi við leikmenn og þjálfarann.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku






