Holdgervingur frelsisins
Fyrst birt: 27.01.2012 12:46 GMT, Síðast uppfært: 27.01.2012 16:55 GMT

Guðmundur Pétursson og GP!Band
Rafmagnsgítarinn er holdgervingur frelsisins og hver sem er hefur rétt til að spila á hann á sinn hátt, segir Guðmundur Pétursson gítarleikari. Hann mætti með hljómsveitina sína, GP!Band í Morgunútvarpið.
Guðmundur sagði frá nýju plötunni sinni, Elabórat og talaði um tónlistina sína, gítara og rokkið.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is







