Hættur að borga í lífeyrissjóð

Þorsteinn Guðmundsson, leikari

Þorsteinn Guðmundsson, leikari hefur alltaf borgað í lífeyrissjóð. Þegar hann var ungur maður var honum sagt að gera það, svo að hann myndi eiga einhvern aur í ellinni.

En svo kemur í ljós, segir hann í vikulegum pistli sínum, að lífeyrissjóðunum er stýrt af blábjánum sem tóku peningana hans og eru nánast búnir að tapa þeim öllum. Þorsteinn skoðar nú aðrar og róttækar leiðir til að ráðstafa sparnaði sínum. Kjarninn er hins vegar sá að hann er hættur að borga í lífeyrissjóð.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku