Grínast ekki með lífeyrissjóðina

Jóhann Alfreð Kristinsson og Anna Svava Knútsdóttir

Mið-Ísland hópurinn hefur á skömmum tíma náð miklum vinsældum. Á föstudagskvöld verða tvær uppistands sýningar í Þjóðleikhúsinu þar sem þeir koma fram ásamt gestum. Jóhann Alfreð Kristinsson og Anna Svava Knútsdóttir litu við í Morgunútvarpið.

Hingað til hafa sýningarnar verið í Þjóðleikhúskjallaranum en nú verða þær á stóra sviðinu. Anna Svava er leikkona og hún hyggst kenna strákunum eitt og annað um það hvernig koma eigi fram á stóru sviði. Til að mynda berist hlátur í bylgjum frá fremsta bekk og aftur í sal og þess vegna verði að gefa áhorfendum lengri tíma til að hlægja. Jóhann sagðist hlakka mikið til að standa á sama sviði og leikarar á borð við Gunnar Eyjólfsson og Arnar Jónsson.

Þau töluðu meðal annars um uppistand á Íslandi sem Jóhann segir að sé vart búið að slíta barnsskónum. Lítið væri um frammíköll áhorfenda og þau gerðu ekki mikið af því að stríða áhorfendum. Hins vegar væri aldrei að vita hvað gerðist á föstudagskvöld.

Jóhann er lögfræðingur en sagðist ekki fá mikinn innblástur úr námsbókunum. Hann væri þessa dagana að fara yfir blöðin til að finna efni en lofaði að minnast ekkert á lífeyrissjóðamálið. Hins vegar mætti búast við bröndurum um Eurovision.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku