Einkaleyfi á nafn dótturinnar

Beyonce og dóttirin Blue Ivy
Það vakti mikla athygli þegar fréttir bárust af því að söngkonan Beyonce ætti von á barni. Slúðurpressan logaði þegar barnið fæddist og aftur þegar stúlkunni var gefið nafnið Blue Ivy. Foreldrar hennar hafa nú fengið einkaleyfi á nafnið. DD-Unit sagði frá þessu í Morgunútvarpinu.
Talið er að foreldrar Blue Ivy, þau Beyonce og Jay-Z hafi ákveðið að fá einkaleyfi á nafn dóttur sinnar til að koma í veg fyrir að hönnuðir láti framleiða vörur með þessu nafni. Þá hefur líka verið nefnt að þau séu að tryggja að þau ein geti látið framleiða vörur undir nafninu Bluey Ivy. DD-Unit sagði frá þessu og hún talaði líka um Contraband, mynd Baltasars sem hefur slegið í gegn í Ameríku.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku






