Brynja vill að Ísland taki þátt

Skiptar skoðanir eru um hvort Ísland eigi að taka þátt í Söngvakeppni evrópskra sjónvarspstöðva í ár. Páll Óskar vill að Ísland sniðgangi keppnina vegna mannréttindabrota sem framin eru Aserbaídsjan.

Jóhanna K. Eyjólfsdóttir, hjá Amnesty Internastional á Íslandi vill hins vegar að Ísland taki þátt en noti tækifærið og mótmæli mannréttindabrotum í landinu þegar út er komið. Undir það sjónarmið tekur Brynja Þorgeirsdóttir, kynnir undankeppninnar. Páll Magnússon, útvarpstjóri, segir málið í skoðun.

Það verður svo fróðlegt að fylgjast með þeim Brynju og Páli Óskari kynna keppendur til leiks á laugardag undir þessum kringumstæðum. Páll Óskar hefur lýst því yfir að í mótmælaskyni ætli hann ekki að nefna Aserbaídsjan. Brynja sagði í samtali við Morgunútvarpið að handriti þáttarins hafi verið breytt vegna þessa.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku