Breivik iðrast einskis

Fjöldamorðinginn Anders Berhing Breivik heilsaði með fasistakveðju þegar hann gekk í dómssal í Osló í gær. Upphaflega stóð til að fjölmiðlar mættu ekki sýna myndir úr salnum né vitna í Breivik en þeirri ákvörðun var breytt á síðustu stundu. Gísli Kristjánsson fjallaði um deilurnar í kringum Breivik.

Stóra spurningin er sú hvort fjölmiðlar eigi að hafa frelsi til að fjalla um hann. Á Breivik að hafa vettvang til að breiða út öfgafullar skoðanir sínar? Hann hefur sjálfur sagt að vitnastúkan verði hans ræðustóll og að honum muni takast að sannfæra fólk um ágæti eigin skoðana. Sjálft réttarhaldið hefst þann 16. apríl og mun Breivik fá nokkra daga til að tjá sig. Réttarhöldunum verður sjónvarpað að hluta, að minnsta kosti til nokkurra dómsaala, en hugsanlega í almennu sjónvarpi.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku