Ætla að endurvekja diskóið

Hljómsveitin Boogie Trouble
Hljómsveitin Boogie Trouble tók lagið í hljóðveri Morgunútvarpsins í morgun og vakti mikla lukku. Hljómsveitin sækir innblástur sinn í diskótónlist áttunda áratugarins og stefnir leynt og ljóst að því að endurvekja diskó á nýrri öld.
Hljómsveitin var stofnuð í lok síðasta árs og var flutningur hennar í Morgunútvarpinu sá fyrsti ef frá eru taldir tónleikar í brúðkaupi vina þeirra. Meðlimir sveitarinnar eru þau Ingibjörg Elsa Turchi, Jóhann Vignir Vilbergsson, Sigurður Guðmundsson, Sindri Freyr Steinsson og Klara Arnalds. Sú síðast nefnda er systir Ólafar Arnalds og hafa þær systur ósjaldan troðið upp saman. Krakkarnir eru tónlistarbrannsanum kunn og koma úr sveitum á borð við Rökkuró, Bárujárni, Sprengjuhöllinni og Kiriyama Family.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku






