Ástandið í Pakistan

Börn í Pakistan

Arabíska vorið er ekki á leið til Pakistan. Spenna einkennir andrúmsloftið segir íslensk kona sem búsett er í landinu.

Ólöf Magnúsdóttir hefur unnið fyrir UNICEF í Pakistan síðan í október 2010. Hún fór upphaflega út á vegum friðargæslunnar að vinna fyrir UNICEF
sem upplýsingafulltrúi í kjölfar flóðanna sem skullu á árið 2010, stærstu flóð í sögu Pakistan þar sem 20 milljónir urðu fyrir áhrifum af hamförunum. Hún lýsti reynslu sinni í Morgunútvarpi Rásar 2 og sagði frá stöðunni í Pakistan

Börn í Pakistan hafa gengið í gegnum ótrúlegar hamfarir og ólán á síðustu árum; náttúruhamfarir og átök, og stuðningsnet UNICEF í landsnefndum út um allan heim, eins og hér á Íslandi, hefur haft ótrúlega mikil áhrif. Heimsforeldrar hafa styrkt lífsnauðsynleg verkefni í Pakistan með börnum í neyð, veitt börnum bólusetningar, heilsuvernd, menntun, vatn og hreinlæti og þann vernd og stuðning sem þau eiga rétt á.

Pakistan er íslamskt ríki og því lagt bann við ýmsu sem talið er sjálfsagt,eins og til dæmis sölu áfengis. Nýlega hafa verið sett lög gegn guðlasti og eru viðurlögin ansi hörð, fangavist eða jafnvel dauði. Tveir stjórnmálamenn töluðu gegn guðlastslögunum þegar þau voru sett í lög árið 2010 og var annar þeirra drepinn af lífverði sínum sem tæmdi hríðskotabyssuna á manninn fyrir utan kaffihús, og annar var drepinn fyrir utan heimili sitt í Islamabad. Öfgamenn virðast vera að ná sífellt betri fótfestu í samfélaginu.

 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku