Á að sniðganga Söngvakeppnina?

Kristalshöllin
Framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands segir ástæðu til að velta fyrir sér hvort Íslendingar eigi að sniðganga Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva og mótmæla þannig mannréttindabrotum sem yfirvöld í Aserbaídjan eru sökuð um að hafa viðhaft við undirbúning keppninnar.
Yfirvöld í Aserbaídjan eru sökuð um að hafa þvingað hundruð íbúa út af heimilum sínum áður en húsin voru jöfnuð við jörðu til að reisa höll þar sem Söngvakeppni evrópskra sjónvarsstöðva fer fram í maí. Ýmsir fjölmiðlar hafa fjallað um þetta mál, nú síðast Spegillinn hér á RÚV. Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands segir ástæðu til að kanna hvort Íslendingar ættu að sniðganga keppnina í ár vegna þessara brota. En þetta er ekki í fyrsta sinn sem fréttir berast af því að íbúar landa þar sem halda á stórviðburði verði fyrir barðinu á yfirvöldum. Mikið var fjallað um hvernig fólk var borið út af heimilum sínum í Peking fyrir ólympíuleikana þar 2008. Grunnskólar voru jafnaðir við jörðu og skelfilegur aðbúnaður verkafólks sem vann við að byggja leikvanga, vakti reiði. Einnig hefur verið sagt frá mannréttindabrotum í Brasilíu í tengslum við undirbúning á heimsmeistaramótinu í fótbolta karla sem fram fer þar eftir 2 ár. Þá sagði Margrét frá því í Morgunútvarpinu að nú sé verið að kanna hvort leigusalar í Lundúnum séu að segja upp leigusamningum í stórum stíl til að geta leigt íbúðirnar út á mun hærra verði þegar ólympíuleikarnir fara fram þar í sumar.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku






