Mokveiði við Snæfellsnes
Fyrst birt: 07.02.2012 16:10, Síðast uppfært: 07.02.2012 16:10

Arnar SH. Mynd: Grétar Þór/www.aflafrettir.com
Skip sem gera út frá Snæfellsnesi hafa mokveitt það sem af er mánuði. Ekki hefur þurft að fara langt út og vel veiðist á 15 til 40 faðma dýpi.
Sem dæmi um góð aflabrögð má nefna að Egill SH fékk 34 tonn á einum degi og Magnús SH 31 tonn. Sagt er frá þessu á vefsíðunni Aflafréttir. Þar er einnig sagt frá því að smábáturinn Arnar SH hafi fengið 23 tonn í 5 trossur, sem geri tæp 5 tonn í trossu. Aflaverðmæti dagsins var tæpar 8 milljónir, að sögn Guðbrands Björgvinssonar skipstjóra.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku






