Missti höndina og fær líklega sekt

Flokkar: Erlent


  • Prenta
  • Senda frétt

Krókódíll beit hönd af skipstjóra skemmtibáts í Flórída á þriðjdag þegar hann var að gefa dýrinu sykurpúða að borða til að skemmta fólki um borð.

Sex ferðamenn urðu vitni að því þegar krókódíllinn kom uppúr kafinu og læsti tönnum sínum í hendi skipstjórans. Veiðimenn eltu dýrið uppi og drápu það og náðu að endurheimta hönd skipstjórans úr maga krókódílsins en læknum tókst ekki að græða hana aftur á. Til að bæta gráu ofan á svart á skipstjórinn yfir höfði sér sekt og jafnvel fangelsi því ólöglegt er að gefa krókódílum að borða í Flórída.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku