Minntust látins bifhjólafólks
Fyrst birt: 08.09.2012 21:15, Síðast uppfært: 09.09.2012 00:11

Bifhjólafólk safnaðist saman á minningarathöfn. Mynd: Malín Brand.
Bifhjólafólk safnaðist saman við Perluna í Öskjuhlíð í kvöld og minntist látinna félaga. Fjöldi fólks var þar saman kominn þegar athöfnin hófst klukkan átta og hlýddi á þegar nöfn þeirra sem látist hafa á síðustu árum voru lesin upp.
Minningarathafnir sem þessar hafa verið haldnar á Íslandi í rúman áratug og eiga sér fyrirmynd erlendis frá.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













