Minni vinna búin en búist var við

Steingrímur á opnum fundi í Vestmannaeyjum í kvöld. Mynd: Sighvatur Jónsson

Vinna við kvótafrumvarpið var ekki jafn langt komin og búast hefði mátt við sagði Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, á opnum fundi í Vestmannaeyjum í kvöld.

Steingrímur fór þar yfir stöðu mála síðan hann tók við frumvarpsgerð úr höndum Jóns Bjarnasonar, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, um áramót.

Steingrímur og Björn Valur Gíslason, sem sæti á í sjávarútvegsnefnd Alþingis, heimsóttu Vestmannaeyjar í dag. Þeir ræddu við framkvæmdastjóra Ísfélagsins og Vinnslustöðvarinnar á skrifstofum Vinnslustöðvarinnar. Steingrímur spurði þá meðal annars út í hvaða fjárfestingar yrði farið í ef óvissu um kvótakerfið yrði eytt. Í framhaldinu funduðu Steingrímur og Björn Valur með fleiri útvegsmönnum í Eyjum.

Róbert Marshall og Björgvin G. Sigurðsson, þingmenn Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi voru með í för. Fjórmenningarnir boðuðu til opins fundar í Alþýðuhúsinu í kvöld. Þar ræddi Steingrímur endurskoðun á stjórn fiskveiða og sagði meðal annars: „Rétt fyrir miðjan janúar skilaði ráðherranefnd sem fór að skoða þessi mál fyrir áramótin af sér stöðuskýrslu þar sem greind var staða vinnunnar. Og sumt var kannski ekki eins þroskað og maður hefði haldið eftir að búið var að glíma við þetta í þetta langan tíma.“

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku