Mikill áhugi á matvælum úr héraði



  • Prenta
  • Senda frétt

Framleiðsla á matvælum, sem eru kennd við ákveðin svæði og menningu, hefur aukist mjög hérlendis undanfarin ár. Ástæðan er meðal annars fjölgun ferðamanna. Búist er við að framleiðendum fjölgi enn frekar.

Bændur víðs vegar um landið selja afurðir beint frá býlum sínum, svo sem kjöt, kæfu, skyrkonfekt, sultur, osta og grænmeti. Úrvalið er orðið býsna gott. Á Vestfjörðum er nú  til dæmis hægt að fá matardisk sem á eru fjölmargir vestfirskir réttir.

Nýsköpunarmiðstöð Íslands sér um verkefnið Krásir, sem er fræðslu- og þróunarverkefni í svæðis- og menningartengdri matargerð. Þátttakendur í því verkefni eru orðnir rúmlega 50 talsins.

Sigurður Steingrímsson hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands, segir að ferðamenn séu mjög áhugasamir um þetta verkefni og þeim finnist mjög spennandi að koma heim á býli og fá að smakka afurðir sem unnar séu með öðrum hætti, kannski í meiri tengslum við búskapinn og náttúruna. Þeim finnist líka gaman að taka þetta með sér sem ferðaminjar. Þetta spyrjist út og mælist yfirleitt vel fyrir.

Sigurður býst við að framleiðendum fjölgi á næstu árum. Eftirspurnin sé mikil og þetta seljist allt, og sé að færast í fastara horf. Menn hafi verið í ákveðnum vandræðum með söluna. Þó menn vilji framleiða ákveðnar vörur heima á býli, séu menn kannski ekki endilega tilbúnir til að selja, en þá séu að myndast ákveðnir staðir eða svæði þar sem þessi vara sé til sölu.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku