Mikill áhugi á Djúpinu
Fyrst birt: 09.09.2012 16:37, Síðast uppfært: 09.09.2012 16:37

Dreifingarfyrirtækið Metrodome Group hefur tryggt sér dreifingarréttinn í Bretlandi á Djúpinu, kvikmynd leikstjórans Baltasars Kormáks.
Screen Daily greinir frá þessu. Myndin var frumsýnd á föstudag á kvikmyndahátíðinni í Toronto. Einnig hefur BAC films hafi tryggt sér dreifingarréttinn í Frakklandi og dreifingarfyrirtæki í Bandaríkjunum og Ástralíu hafi sýnt því mikinn áhuga að kaupa réttinn að myndinni. Þá segir að minnst eitt kvikmyndaver í Bandaríkjunum hafi sýnt því áhuga að endurgera myndina.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













