Mikið mannfall í Sýrlandi

Frá átökunum í Homs Mynd: Nordic Photos/AFP

Að minnsta kosti fjórir óbreyttir borgarar létust í árás á hverfi Súnní múslima í borginni Homs í Sýrlandi í morgun. Meðal látinna var fimmtíu og fimm ára gömul kona. Fólkið lést þegar sprengja féll á hús þeirra.

Tuttugu og átta manns létust í tveimur sprengingum í hafnarborginni Aleppo í Sýrlandi í gær. Þetta er mesta mannfall í borginni til þessa en þar hefur Bashar al-Assad forseti átt víðtækan stuðning. Enginn hefur enn lýst ábyrgð á árásinni en sprengjurnar sprungu við herstöð, á sama tíma og hermenn forsetans hafa sýnt meiri hörku gagnvart mótmælendum.

Hörð átök voru uppi um gervallt Sýrland í gær. Í Damaskus barðist frelsisherinn við herlið forsetans til að hindra það í að fara inn í hverfi þar sem mótmælafundur var haldinn.

Þá héldu árásir Sýrlandshers á borgina Homs áfram af fullum þunga, en þær hafa nú staðið yfir í heila viku og kostað tugi borgara lífið. Í gær samþykktu erindrekar Evrópusambandsins nýjar refsiaðgerðir gegn Sýrlandi sem þeir vonast til að verði staðfestar á fundi utanríkisráðherra sambandsins í lok mánaðarins.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku