Miami Heat NBA-meistari
Fyrst birt: 22.06.2012 04:49, Síðast uppfært: 22.06.2012 06:58
Flokkar: Körfubolti, Íþróttir

LeBron James lyftir verðlaunabikarnum eftir að Miami lagði Oklahoma í fimmta leik liðanna. Mynd: AFP.
Miami Heat varð í nótt meistari í bandarísku NBA-deildinni í körfuknattleik. Miami vann Oklahoma City Thunder 121-106 á heimavelli Miami í fimmta leik liðanna í úrslitum deildarinnar.
Miami sigraði í fjórum leikjum en Oklahoma hafði betur í einum. Miami beið lægri hlut fyrir Dallas í úrslitum í fyrra.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













