Metnaðarleysi Menntavísindasviðs

Anna Þorbjörg Ingólfsdóttir, lektor í íslensku við Háskóla Íslands, segir metnaðarleysi ríkja hjá stjórnendum Menntavísindasviðs skólans gagnvart íslenskukennslu kennaranema. Sá sem ekki velji íslensku sem kjörfag fái litla sem enga kennslu um íslenskt mál eða bókmenntir.
Anna Þorbjörg sagði í Morgunútvarpi Rásar tvö í morgun að ekki væri mikill áhugi meðal stjórnenda Menntavísindasviðs á íslenskri tungu. Henni finndist ríkja þar ákveðið metnaðarleysi og ræktarleysi í garð tungunnar.
Hún segist ekki í vafa um að þetta sé farið að bitna á kennslunni og ástandið muni versna. Áður hafi verið meiri íslenskukennsla í kennaranáminu og skólarnir búi að þeim kennurum ennþá, en horfast verði í augu við það að nú séu að koma í kennaranám nemendur sem ef til vill hafi ekki lesið mjög mikið.
Í grunnskólum sé börnum kennt að lesa og lestrarkennslan hafi lagast, en síðan þurfi að þjálfa börn í lestri og hvað eigi þau að lesa? Barnabækurnar henti vel sem þjálfun í lestri, en þá verði kennarar að vita eitthvað um bókmenntir. Og kennarar verði að vita eitthvað um mál til þess að geta unnið skemmtilega með börnum um bókmenntir og mál.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku






