Mest gróðursett í Norðurþingi

Norðurþing er það sveitarfélag landsins sem gróðursett hefur flestar trjáplöntur. Um tvær milljónir plantna hafa verið gróðursettar í kringum Húsavík.
Skógræktarfélag Íslands veitti nýlega sveitarfélaginu Norðurþingi viðurkenningu fyrir viðamikið gróðurbótastarf í bæjarlandi Húsavíkur og öfluga þátttöku í Landgræðslukógaverkefninu og öfluga þátttöku í Landgræðsluskógaverkefninu en frá árinu 1990 hafa meira en tvær milljónir trjáplantna verið gróðusettar á vegum Landgræðsluskógaverkefnissins í kringum Húsavík.
Jan Klitgaard, garðyrkjustjóri Norðurþings segir að heildarflatarmál gróðursetts svæðis sé 250 hektarar og að eftir 20-30 ár verði þetta væntanlega mikill skógur. Hann segir trjáplönturnar séu þegar farnar að hafa áhrif á veður og vinda á svæðinu og eldri heimamenn segja að lítið hafi orðið vart við hin alræmdu og vindasömu krubbsveður undanfarin 10 ár. Jan segir mikinn áhuga hafa verið fyrir skógrækt í sveitarfélaginu og ákveðið hafi verið að búa til grænan kraga í kring um bæinn til að gera meiri veðursæld, draga úr vindi og binda snjó þannig að hann berist ekki eins mikið ofan í bæinn.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














