Merki um kosningaskjálfta

Mynd: Shutterstock.


  • Prenta
  • Senda frétt

Þingmenn Samfylkingarinnar sem fréttastofa hefur rætt við í dag telja engar efnislegar forsendur til annars en að halda umsóknarferlinu að Evrópusambandinu til streitu.

Tveir ráðherrar vinstri grænna, Katrín Jakobsdóttir og Svandís Svavarsdóttir sögðu í fréttum RÚV í gær að nauðsynlegt væri að staldra við og endurmeta umsókn íslands að ESB vegna þess hversu forsendur hefðu breyst. Slæmt væri að fara í kosningar næsta vor án þess að ferlinu væri lokið eða að þjóðin hefði fengið að segja sitt um það í atkvæðagreiðslu. Þá hefðu aðstæður innan ESB breyst mjög frá því að umsóknin var samþykkt sumarið 2009. Evran væri í krísu og óvíst hvert Evrópusambandið stefndi.

Fréttastofa hefur reynt að ná viðtölum við forystufólk í Samfylkingunni í morgun en án árangurs. Þeir þingmenn sem náðst hefur í segja enga ástæðu nú til að taka málið upp á Alþingi á ný, ljúka ætti aðildarferlinu og að Vinstri græn yrðu að standa við stjórnarsáttmála flokkanna. Ummæli ráðherranna bæru merki um kosningaskjálfta.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku