Mengun minni en óttast var

Mun minna af bensíni virðist hafa farið út í sjó í Hestfirði í Ísafjarðardjúpi í nótt en í fyrstu var talið.

Anton Helgason, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Vestfjarða, segir að svo virðist sem stór hluti þeirra 25 þúsund lítra sem láku út í umhverfið hafi ekki ratað út í sjó. Olíuflutningabíll frá Skeljungi með 39 þúsund lítra af bensíni fór út af veginum í mikilli hálku í gærkvöldi.

Að sögn Antons valt bíllinn upp fyrir veg, þar sem eru klettar og vegrás og útrás frá henni. Hún var þurr þannig að ekki hefur farið mikið í gegnum hana. Síðan er búinn að vera dælubíll á slysstaðnum í dag að dæla upp bensíni og vatni.

Fiskeldiskvíar eru skammt frá slysstað. Margir höfðu áhyggjur af því að bensínið myndi berast þangað. Anton var Hestfirði í allan dag og segir ekki vísbendingar um mengun sem ógni lífríkinu. Frekari rannsóknir verði gerðar með vorinu. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent, Vestfirðir

Tilkynna um bilaða upptöku