Einfalt að elda, súkkulaðimús

Í þessum þætti kennir Hafliði Ragnarsson í Mosfellsbakaríi okkur að útbúa himneskan súkkulaðieftirrétt, súkkulaðimús með hindberjasósu.
Súkkulaði eftirréttur, súkkulaðimús
Kókoskex
50gr smjör
50gr sykur
50gr hveiti
50gr kókos
Aðferð
Hráefnið sett í skál og hnoðað saman með höndunum.
Sett í litlum kubbum á bökunarpappír í ofnskúffu og sett inn í ofn.
Bakað við 180 ° í 15-20 mín
Hindberjasósa
100gr vatn
100gr sykur
100gr hindber frosin
Aðferð
Vatn og sykur sett í pott. Látið sjóða örlítið þannig að sírópið þykkni. Tekið af hitanum og hellt varlega yfir hindberin. Allt múlað saman með töfrasprota.
Súkkulaðimús
100gr mjólk
200gr karamellusúkkulaði
2blöð matarlím
250gr léttþeyttur rjómi
Aðferð
Matarlímið bleytt upp í vatni. Mjólkin hituð í potti. Matarlíminu bætt út í mjólkina og hrært saman. Mjólkurblöndunni hrært varlega saman við súkkulaðið þar til allt hefur blandast vel saman. Súkkulaðinu er síðan blandað út í léttþeytta rjómann.
Hindberjasósan sett í botninn á glerskál. 1- 2 msk af súkkulaðimús sett þar ofan á. Kókoskexinu sem hefur verið kælt er raðað út í kantinn á skálinni og fyllt upp í með meiru af súkkulaðimúsinni. Kælt í ca 4 klst eða þar til vel stíft. Skreytt með rifnu súkkulaði og örlitlu af hindberjasósu og heslihnetu sem er sett á toppinn (má nota hvaða hnetu sem er til skrauts)
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is









