Með 500 e-töflur í Leifsstöð



  • Prenta
  • Senda frétt

Ungur Íslendingur var stöðvaður í flugstöð Leifs Eiríkssonar í fyrrinótt. Við leit á honum fundust fíkniefni og reyndist hann líka hafa fíkniefnapakkningar innvortis. Alls fundust rúmlega 500 e-töflur og rúmlega sextíu grömm af kókaíni.

Málið er til rannsóknar hjá lögreglunni á Suðurnesjum sem veitir ekki frekari upplýsingar um það að svo stöddu.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku