Um 35% viðskiptavina með erlend íbúðalán hafa nýtt sér höfuðstólsleiðréttingu bankans. Að meðaltali hefur starfsfólk bankans afgreitt um 150 lánabreytingar á viku. Í tilkynningunni kemur jafnframt fram að bankinn hefur ákveðið að krefjast ekki uppboða vegna vangoldinna húsnæðislána til loka ársins 2010, óháð því hvort um er að ræða innlend eða erlend lán.
frettir@ruv.is