Margir kjósa utankjörfundar

Íbúar í Sóltúni kusu utankjörfundar í síðustu viku.
Um 12.700 manns hafa kosið utankjörfundar í forsetakosningum það sem af er. Þar af hafa rúmlega sjö þúsund kosið hja Sýslumanninum í Reykjavík.
Atkvæðagreiðsla hjá honum er í Laugardalshöll og er þar opið frá því tíu á morgnana til tíu á kvöldin til föstudags. Á kjördag, laugardag geta kjósendur sem ekki búa á höfuðborgarsvæðinu kosið í Laugardalshöll milli 10 og 17.
Aðsend atkvæði frá útlöndum og milli sýslna eru á fjórtándahundrað. Um þriðjungi fleiri hafa kosið nú utankjörfundar en höfðu gert þegar jafnlangt var til kosninga í seinni Icesave-kosningunum. Straumurinn er stöðugur og jafn í Laugardalshöllina, þar kusu 126 á einni klukkustund í morgun. Kosningar ganga vel og menn þurfa lítið að bíða.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is








