Mannréttindasamtök ákærð í Kaíró
Fyrst birt: 06.02.2012 03:31, Síðast uppfært: 06.02.2012 07:14

Stjórnvöld í Egyftalandi tilkynntu í gær að yfir 40 starfsmenn frjálsra félagasamtaka verði ákærðir fyrir ólöglega fjármögnun þeirra.
Samtökin eru flest erlend og vinna að mannréttindum og lýðræðisumbótum. Flestir hinna ákærðu eru útlendingar, þar á meðal 19 Bandaríkjamenn og fimm Serbar. Allir eru í farbanni. Herforingjaráðið, sem fer með völdin í Egyftalandi, sakar erlendu samtökin um að fjármagna mótmælin gegn sér. Bandaríkjastjórn krafðist í gærkvöld nánari skýringa. Bandarísk stjórnvöld tilkynntu um helgina að fjárhagsaðstoðin við Egyftaland verði endurskoðuð vegna málsins. Hún nam í fyrra 1,3 miljörðum dollara.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
ErlentTilkynna um bilaða upptöku





