Manchester City í 16-liða úrslit

Úr leik liðanna nú undir kvöld

Manchester City er komið áfram í 16-liða úrslit Evrópudeildar UEFA eftir 4-0 sigur á Porto á heimvelli í síðari leik liðanna í 32-liða úrslitum en leiknum lauk nú undir kvöld. Manchester City vann fyrri leikinn 2-1 og því viðureignina samanlagt 6-1.

Sergio Aguero kom Manchester City í 1-0 strax á fyrstu mínútu leiksins og þannig var staðan allt þar til um miðjan síðari hálfleik en þá bætti Edin Dzeko við öðru marki fyrir liðið. Þeir David Silva og David Pizzaro gulltryggðu svo 4-0 sigur Manchester City með tveimur mörkum á lokamínútum leiksins.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku