Malmö sigraði Djurgården
Fyrst birt: 15.08.2012 20:14, Síðast uppfært: 15.08.2012 20:16

Sara Björk Gunnarsdóttir og félagar í Malmö unnu í dag - Mynd: www.itsawomensworld.se
Keppni í úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu í Svíþjóð hófst á ný í dag eftir rúmlega mánaðar frí þegar Malmö lagði Djurgården 2-1 á útivelli.
Sara Björk Gunnarsdóttir og markvörðurinn Þóra Björg Helgadóttir léku báðar allan leikinn fyrir Malmö og Guðbjörg Gunnarsdóttir stóð allan tímann á milli stanganna hjá Djurgården. Malmö er í efsta sæti deildarinnar með 30 stig eftir 12 leiki en Djurgården er í botnsætinu með 6 stig.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














