Malí komst í undanúrslit

Úr leik Ghanamanna og Túnis. Mynd: AFP

Fjórðungsúrslitum Afríkumótsins í knattspyrnu lauk í gærkvöld með tveimur leikjum. Malí komst í undanúrslit með sigri á Gabon í vítaspyrnukeppni. Staðan var 1-1 eftir venjulegan leiktíma og framlengingu.

Ghana vann Túnis 2-1 eftir framlengingu. Ghana mætir Fílabeinsströndinni í undanúrslitunum á miðvikudag. Malí leikur gegn Sambíu.

 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku