Máli Jóns gegn Persónuvernd vísað frá

Mynd: Þórgunnur Oddsdóttir.

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur vísað frá máli Jóns Magnússonar, fyrrverandi alþingismanns, gegn Persónuvernd. Jón gerði þá kröfu að viðurkennt yrði að ákvörðun stjórnar Persónuverndar um heimildir Seðlabankans til vinnslu persónuupplýsinga í þágu gjaldeyriseftirlits sé ólögmæt.

Niðurstaða Persónuverndar var að vinnsla Seðlabanka Íslands á persónuupplýsingunum styddist við fullnægjandi lagaheimildir. Taldi Jón að með ákvörðuninni hafi Seðlabankanum verið veitt heimild til of víðtækrar skoðunar á málefnum, sem snúi að friðhelgi einkalífs hans. Sem dæmi voru nefnd ferðalög, neyslumynstur og áhugamál. Niðurstaða héraðsdóms var sú að ekki yrði séð að Jón hafi einstaklega, beina og lögvarða hagsmuni af úrlausn dómkröfu sinnar. Jón þarf að greiða Persónunvernd hundrað þúsund krónur í málskostnað.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku