Mættu þjófinum á leið í útkall

Brotist var inn í Húsaskóla í Grafarvogi í Reykjavík rétt fyrir klukkan tvö í nótt og stálu þjófarnir sjónvarpstæki. Þegar lögreglumenn voru á leið í útkallið sáu þeir til tveggja manna og tóku niður nöfn þeirra.

Eftir að hafa rannsakað á vettvangi fór lögreglan á heimili annars þeirra og fann þar sjónvarpið.

Upp úr klukkan hálf fjögur var lögregla kölluð að Bankastræti. Þar hafði verið reynt að brjótast inn í sérvöruverslun og rúða brotin í hurð bakatil. Ekki var farið inn og því engu stolið.

Upp úr klukkan átta var rúða brotin í Bókasafni Hafnarfjarðar. Ekki er vitað hver var þar að verki.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku