Maður stunginn í Hafnarfirði

Fjórir voru handteknir vegna líkamsárásar í Hafnarfirði í nótt. Maður var stunginn með hníf, en hlaut þó ekki lífshættulega áverka. Atburðarásin er nokkuð á huldu en fórnarlambið er meðal hinna handteknu. Fíkniefni fundust að auki á einum í hópnum.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku