Lottóvinningshafi vitjar vinnings
Fyrst birt: 26.06.2012 14:39, Síðast uppfært: 26.06.2012 16:02
Flokkar: Innlent, Norðurland

Hinn heppni eigandi lottómiða sem keyptur var í Leirunesti á Akureyri þann 9. júní hefur gefið sig fram. Hann var einn með allar tölur réttar og potturinn sjöfaldur. Hann vann því rúmlega 73 milljónir króna. Ekki fylgir sögu af hverju hann beið svo lengi með að vitja vinningsins.














