Lokað í Tindastóli
Fyrst birt: 28.01.2012 11:14 GMT, Síðast uppfært: 28.01.2012 11:14 GMT

Á skíðum í Hlíðarfjalli. Safnmynd.
Skíðasvæðinu í Tindastóli hefur verið lokað í dag þar sem umsjónarmönnum svæðisins þykir gusta heldur mikið í brekkunum til að ráðlegt sé að halda því opnu.
Það verður hins vegar opið í Hlíðarfjalli til klukkan fjögur í dag. Þar er fínasta veður að sögn starfsfólks, þriggja stiga hiti og logn.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is







