Loka sendiráðinu í Sýrlandi
Fyrst birt: 06.02.2012 15:05, Síðast uppfært: 06.02.2012 15:28

Öryggisverðir utan við bandaríska sendiráðið í Damaskus. Mynd: Nordic Photos/AFP
Stjórnvöld í Bandaríkjunum lokuðu í dag sendiráði landsins í Sýrlandi. Þeir sem eftir voru af starfsfólkinu voru fluttir úr landi.
Að sögn stjórnvalda er þetta gert til að stefna öryggi stjórnarerindrekanna ekki í hættu vegna ástandsins í landinu. Barack Obama forseti lagði á það áherslu í dag að leysa yrði ágreininginn milli stjórnar og stjórnarandstöðu í Sýrlandi eftir diplómatískum leiðum. Allt aðrar aðstæður væru þar en í Líbíu, þar sem herlið Atlantshafsbandalagsins og fleiri lögðu sitt af mörkum til að koma Muammar Gaddafi einvaldi frá völdum.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







