Lögregla í Aþenu beitir táragasi

Lögregla og grískir mótmælendur takast á utan við þinghúsið. Mynd:Nordic Photos/AFP.
Gríska lögreglan hefur beitt táragasi gegn mótmælendum fyrir utan þingið í Aþenu. Tugir þúsunda mótmælenda hafa safnast þar saman en þingmenn ræða nú frumvarp um niðurskurðaraðgerðir ríkisstjórnarinnar.
Gengið verður til atkvæða í kvöld eða nótt. Hiti hefur verið í umræðum innandyra. Þingmaður komúnistaflokksins kastaði frumvarpinu í gólfið með látum. Fjármálaráðherrann Evangelos Venizelos sagði að landið yrði gjaldþrota ef þingmenn samþykktu ekki lögin.
Lukas Papademos, forsætisráðherra Grikkja, varaði þjóðina í gær við því að kjör hennar yrðu sýnu verri ef aðhaldsaðgerðum yrði hafnað. Þriggja milljarða evra niðurskurður í ríkisútgjöldum er forsenda áframhaldandi lánafyrirgreiðslu Evrópusambandsins og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Fleiri fréttir
Tilkynna um bilaða upptöku

Mótmæli í Grikklandi
Grikkland gjaldþrota?





