Lögmenn komnir í málið
Fyrst birt: 27.01.2012 15:51 GMT, Síðast uppfært: 27.01.2012 15:51 GMT

Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna hefur falið lögmönnum að gæta hagsmuna sjóðsins vegna ágreinings við slitastjórnir tveggja banka, Glitnis og Kaupþings vegna uppgjörs gjaldmiðlavarnarsamninga.
Slitastjórnir hinna föllnu banka hafa hvor um sig krafið lífeyrissjóðinn um greiðslur sem þær ætla að sjóðurinn skuldi bönkunum vegna uppgjörs samninganna. Lífeyrissjóðurinn telur að þær kröfur standist ekki lög. Segir í tilkynningu frá sjóðnum að í rúm þrjú ár hafi árangurslaust verið reynt að leysa málið. Allra leiða verði leitað til þess að tryggja best hagsmuni sjóðsfélaga með eða án atbeina dómstóla.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is







