Stattu upp - nr. 900-9906

Smelltu til að horfa á lifandi flutning
Lag og texti: Ingólfur Þórarinsson og Axel Árnason
Texti:
Þú þarft að segja mér
viltu gefa mér allt sem ég óska mér
ég sé þú varst einmana
eins og ég.
Loks hef ég tíma, tíma til að segja allt eins og er
ístað þess að þegja
þú þegir ef þú þorir ekki að segja miklu meira
þú ættir í raun bæði að hlusta og heyra.
Þú veist það vinur þú þarft að fara að trúa á þig
mundu samt að hlusta á mig
ef segi þér að nú sé tími til að snúa viðog finna síðan innri frið.
Gerðu allt sem þig langar til
ekki næstum því ekki hér um bil
ekki gefast upp og ekki hætta við
því þá muntu vinna meira og minna.
Stattu upp fyrir sjálfum þér …
Þeir sem að sigra svo sérhverja keppni
þurfa á miklu meira að halda en heppni
flestir eru kaldir og láta bara vaða
án þess að vita hvert þeir ætla að fara.
Skítt með frægðina og skítt með framann
er ekki málið að hafa bara gaman
njóta lífsins vera góður við aðra
ekki nöldra, bulla og þvaðra.
Vertu réttur maður á réttum stað
því það dugar ekkert minna en það
vertu sterkur ef það er eitthvað að
lifðu lífinu lifandi á sérhverjum stað.
Stattu upp fyrir sjálfum þér …
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Lögin eru einungis til hlustunar á vefnum. Opinber flutningur er óheimill.
