Lögin þrjú sem komust áfram

Lögin Hugarró í flutningi Magna og Aldrei sleppir mér í flutningi Gretu Salóme, Guðrúnar Árnýjar og Heiðu Ólafs tryggðu sér í kvöld sæti í úrslitakeppni Söngvakeppni Sjónvarpsins þann 11. febrúar.

Lögin komust áfram eftir símakosningu almennings og mat dómnefndar, sem hvort um sig hafði 50% vægi. Lag Sveins Rúnars Sigurðssonar, Stund með þér í flutningi Rósu Birgittu Ísfeld, er sjöunda lagið sem keppir um að verða framlag Íslands til Eurovision keppninnar í Aserbaídsjan í vor. Lagið keppti í öðrum undanúrslitaþætti Söngvakeppni Sjónvarpsins en komst ekki áfram eftir að atkvæði almennings í símakosningu og mat dómnefndar hafði verið lagt saman.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Til baka