Lochte hlaut fyrsta gullið í sundi
Fyrst birt: 28.07.2012 18:50, Síðast uppfært: 28.07.2012 19:31
Flokkar: Ólympíuleikar, Íþróttir

Ryan Lochte vann fyrstu gullverðlaunin í sundi á Ólympíuleikunum í Lundúnum
Bandaríkjamaðurinn Ryan Lochte sigraði í 400 metra fjórsundi á Ólympíuleikunum í Lundúnum í kvöld en hann synti úrslitasundið á tímanum 4:05,18 mínútur og vann þar með fyrstu gullverðlaun sundkeppninnar á leikunum.
Thiago Pereira varð annar á tímanum 4:08,86 og hlaut silfurverðlaun en Japaninn Kosuke Hagino varð þriðji að bakkanum á tímanum 4:08,94 mínútur og vann til bronsverðlauna.
Bandaríkjamaðurinn Michael Phelps varð fjórði á tímanum 4:09,28 en hann átti titil að verja í greininni.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is








