Ljósmyndasnápar sitja um Tom Cruise

Paul Hennessy ljósmyndari.


  • Prenta
  • Senda frétt

Ljósmyndasnápar, eða svokallaðir papparassar, sitja nú um stórstjörnuna Tom Cruise og fjölskyldu hans, þar sem þau dvelja á Norðurlandi. Þeir nota stórar og vandaðar aðdráttarlinsur til að ná sem bestum myndum.

Ljósmyndarar og fréttamiðlar ytra fylgjast venjulega með hverju fótmáli leikarans - og elta hann til Íslands ef því er að skipta. Sést hefur til nokkurra ljósmyndara á sveimi í kring um dvalarstað leikarans í Vaðlabyggð gengt Akureyri. Þeir nota stórar og miklar aðdráttarlinsur til að ná sem bestum myndum. 

„Ég er ekki í fríi hérna. Ég er atvinnuljósmyndari og á að taka myndir fyrir grein um Tom Cruise að taka Oblivion á Íslandi," segir Paul Hennessy ljósmyndari.

„Við fáum upplýsingar frá blaðamanni á staðnum, lesum það sem birtist á netinu, það sem hægt er að lesa á twitter og við komum og birtum það sem skemmtilega frétt að Tom komi hingað að taka upp Oblivion," segir hann. 

Í nokkra daga hafa ljósmyndararnir fylgst náið með Cruise sem ferðast um í þyrlu frá Vaðlaheiðinni að tökustað í Skútustaðahreppi. Þeir segjast hafa náð ágætis myndum af leikaranum og fylgdarliði hans - enda eru þeir með réttu græjurnar í verkið.

„Við getum tekið myndir í allt að eins kílómetra fjarlægð og erum með fín gæði," segir hann.

Hluti myndanna birtist á frétta- og myndamiðlinum Splash News, sá sem tekur myndirnar getur svo selt þær víða.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku