Litháísk glæpagengi smygla bleium

Flokkar: Erlent


  • Prenta
  • Senda frétt

Norska lögreglan segist vera á hælum erlendra glæpagengja sem stundi stórfellt smygl á bleium frá Noregi til Litháens. Flestar vörur eru dýrari í Noregi en nágrannalöndunum en því er öfugt farið með bleiur.

Pakki af vinsælli tegund kostar aðeins 430 íslenskar krónur í Noregi en sami pakki getur kostað allt að 2500 krónur í verslunum í Litháen. Tollverðir stoppuðu nýlega litháenskan flutningabíl sem var á leiðinni yfir landamærin til Svíþjóðar með fullfermi af bleium. Áætlað götuverðmæti bleianna er vel á fjórðu milljón íslenskra króna.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku