Listamaðurinn besta myndin á BAFTA

Tinker, tailor, soldier, spy var valin besta breska myndin á BAFTA hátíðinni í kvöld, verðlaunaafhendingu bresku kvikmyndaakademíunnar. Besti leikstjóri var valinn Michel Hazanavicius sem stýrði þöglu myndinni, l'Artiste, Listamanninum.

Besta leikkonan var Meryl Streep í hlutverki Járnfrúarinnar, Margrétar Thatcher.

Jean Dujardin var talinn besti leikarinn sem kvikmyndastjarna í Listamanninum og skal engan undra að besta myndin í flokki almennra mynda var talin vera Listamaðurinn. Bandarísku Grammy verðlaunin verða svo afhent tónlistarmönnum í nótt.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Erlent, Mannlíf

Tilkynna um bilaða upptöku