Línur að skýrast í fótboltanum á ÓL

Rafael (t.v.) í leiknum gegn Nýja Sjálandi.


  • Prenta
  • Senda frétt

Keppni í C-riðli í knattspyrnu karla lauk á Ólympíuleikunum í dag. Brasilía og Egyptaland tryggðu sér þá farseðil í 8 liða úrslit.

Brasilía vann Nýja Sjáland 3-0 og vann alla sína leiki í riðlinum, þrjá talsins. Danilo, Leandro Damiao og Sandro skoruðu mörk Brasilíu.

Brasilía mætir Hondúras í 8 liða úrslitum.

Egyptar unnu Hvít-Rússa 3-1 og mæta Japönum í 8 liða úrslitum.

Úrslit í fleiri riðlinum ráðast í kvöld en hér má fylgjast með gangi mála og úrslitum.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku