Levanger upp um þrjú sæti

Ágúst Þór Jóhansson þjálfar Levanger.

Levanger fór í kvöld upp í 7. sæti norsku úrvalsdeildarinnar í handbolta úr 10. sæti með sigri á Flint Tönsberg, 23-17. Ágúst Jóhannsson landsliðsþjálfari íslenska kvennalandsliðsins þjálfar einnig kvennalið Levanger í Noregi.

Sigurinn var kærkominn fyrir Levanger sem hafði tapað síðustu fimm leikjum í deildinni og var fyrir leikinn í kvöld einu sæti frá fallsæti, en 12 lið leika í norsku úrvalsdeildinni.

Nína Björk Arnfinnsdóttir var ekki meðal markaskorara hjá Levanger í kvöld, en hún stendur fyrst og fremst vörn hjá liðinu. Rakel Dögg Bragadóttir er enn meidd og lék því ekki Levanger í kvöld.

Ágúst Jóhannsson hefur þegar tilkynnt að hann muni hætta þjálfun liðsins eftir að tímabilinu lýkur.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku