Vinstri-grænir vilja lítil leiksvið
Fyrst birt: 03.02.2012 11:36, Síðast uppfært: 26.02.2012 15:05

Hvernig er hægt að skapa leikhús sem höfðar til allra? Sviðslistahópurinn Sextán elskendur velti þessari spurningu fyrir sér og fékk í framhaldi Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands til liðs við sig til að rannsaka viðhorf Íslendinga til leikhússins og hvað þeir vilja sjá.
Könnunin leiddi ýmislegt áhugavert í ljós - meðal annars að stjórnmálaskoðanir virðast vera afar mikilvæg breyta í þessu sambandi. Þannig kom í ljós að kjósendur Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks eru líklegri til að vilja sjá leikrit á stóru sviði á meðan kjósendur Vinstri-Grænna og Samfylkingar vilja frekar sjá leikrit á litlu sviði. Kjósendur Vinstri-grænna eru líklegastir til að vilja upplifa samviskubit í leikhúsi, kjósendur Sjálfstæðisflokksins skemmtun. Og meira og fleira.
Eftir mánuð frumsýnir Sviðslistahópurinn Sextán elskendur Sýningu ársins en þá verða niðurstöður rannsóknarinnar gerðar heyrinkunnugar. Víðsjá fékk smá forsmekk að niðurstöðum þegar Friðgeir Einarsson úr Sextán elskendum og þær Auður Magndís Leiknisdóttir og Heiður Hrund Jónsdóttir frá Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands komu í heimsókn.
Viðtalið má hlýða á hér.
Tónlistin í innslaginu eftir Pétur Grétarsson, Ólaf Hauk Símonarson og Tríóið Flís – sótt í íslenskar uppsetningar.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







