Skrímslið litla systir mín

Að eignast lítið systkini getur verið erfitt og breytir lífinu umtalsvert. Sérstaklega ef systkinið er lítið skrímsli.

Leikritið Skrímslið litla systir mín fjallar einmitt um þetta, að eignast systkin sem í fyrstu virðist skrímsli sem gæti hæglega borðað mömmu og pabba og allan heiminn ef því er að skipta. Öll leikmynd og leikmunir eru gerð úr pappír og er allt skapað á sviðinu og eftir verkið er hægt að leika sér sjálfur í pappírsveröldinni og rækta skrímslið inni í sér. Margrét Erla Maack og Egill Eðvarðsson litu inn á æfingu.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku