Oddur játar

Róbert Arnfinnsson leikari afhendir Oddi Björnssyni leikskáldi heiðursverðlaun Grímunnar 2011

Það var í sumar sem síðasta viðtalið var tekið upp við Odd Björnsson. Í þessu viðtali segir hann frá því hvers vegna hann skrifaði leikrit. Oddur var brautryðjandi í nútímaleikritun á Íslandi.

Þetta viðtal má heyra í þættinum Ég skrifa leikrit af því ég get ekki annað, sem er á dagskrá Útvarpsleikhússins sunnudaginn 4. desember kl. 14, á Rás 1.

Þar er fjallað um lífsstarf þessa merka íslenska leikritahöfundar, Odds Björnssonar.

Oddur var einn frumkvöðla nútíma leikritunar á Íslandi og lagði sig eftir hljómfalli tungumálsins og þagnanna.

Hann hlaut heiðursverðlaun Leiklistarsambands Íslands, Grímuna 2011, fyrir ómetanlegt framlag sitt til íslenskra sviðslista.

Oddur Björnsson lést 21. nóvember sl.

Umsjón með þættinum hefur Viðar Eggertsson.

HÉR má lesa um Odd Björnsson, leikskáld.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku