Ljóðskáldið sem drap menn

Hann var aðeins barn að aldri þegar hann er talinn hafa framið sitt fyrsta dráp - og orti sitt fyrsta ljóð. Hvort sem sagan af honum er sönn eða ei, þá hefur hann orðið eitt nafntogaðasta ljóðskáld Íslands.

Þetta var Egill Skallagrímsson, víðfrægastur fornkappa Íslands. Útvarpsleikhúsið flytur leikrit um hann, sem byggt er á Egils sögu Skallagrímssonar og heitir leikritið EGILS SAGA og er á nútíma íslensku.

Það verður á dagskrá á Rás 1næstu þrjá sunnudaga kl. 14:00. Fyrsti þátturinn á sunnudaginn, 22. janúar.

Hér er á ferðinni túlkun höfundar, norska leikskáldsins Mortens Cranner, á þessari frægu Íslendingasögu.

Þýðingu leiktexta gerði Ingunn Ásdísardóttir og Þórarinn Eldjárn þýddi ljóðin. Frumsamin tónlist er eftir Hildi Ingveldar- Guðnadóttur, Einar Sigurðsson annaðist hljóðvinnslu og leikstjóri er Erling Jóhannesson. Með hlutverk Egils fer Ingvar E. Sigurðsson.

Egils saga er ein frægust allra Íslendingasagna og mun hún hafa verið rituð á fyrri hluta 13. aldar og hafa menn m.a. nefnt til Snorra Sturluson sem höfund hennar. Ekki eru þó allir á eitt sáttir um það og verður víst seint skorið úr því hver sé höfundur hennar og nákvæmlega hvenær hún var rituð. 



 Sögusvið leikritsins Egils sögu er 10.öldin og hefst leikritið með fæðingu Egils og lýkur við lát Böðvars, sonar hans, sem Egill yrkir um hið magnaða sorgarljóð Sonartorrek.



Egils saga er í stórum dráttum skáldsaga. Miðpunktur leikritsins, líkt og í sögunni er Egill Skallagrímsson. Þá koma einnig við sögu Skallagrímur faðir hans; bróðir Egils, Þórólfur; kona hans, Ásgerður og börn þeirra; sem og ýmsir þeir sem Egill átti samskipti við með einum og öðrum hætti, konungar og aðrir fornkappar.



 Egill Skallagrímsson er enginn hvunndagsmaður. Hann bjó yfir mörgum þeim eiginleikum sem kappar þess tíma þurftu að hafa til að geta kallast hetjur. Fáir ef nokkur stóðst honum snúning að vopnfimi og kröftum; þá var hann áræðinn og óttaðist fátt, og þess utan var hann afbragðs skáld en frægustu kvæði hans, Höfuðlausn og Sonartorrek þykja með því besta í kveðskap sem varðveist hefur frá þessum tíma.


Persónur og leikendur í 1.hluta:
Egill: Ingvar E. Sigurðsson 

Bera: Arndís Hrönn Egilsdóttir
Skallagrímur: Jóhann Sigurðarson
Þórólfur: Hjálmar Hjálmarsson
Eiríkur Blóðöx: Kristján Franklín Magnús
Gunnhildur drottning: Harpa Arnardóttir
Þórir Hersir: Erlendur Eiríksson
Arinbjörn: Magnús Jónsson.
Auk þeirra: Víkingur Kristjánsson, Sveinn Ólafur Gunnarsson, Sólveig Guðmundsdóttir, Gunnar Hansson, Guðjón Þorsteinn Pálmason, Pétur Einarsson, Edda Arnljótsdóttir og Sigurður Eyberg.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku